Í Dýptina með Vetrinum
sun., 29. des.
|Reykjavík
Veturinn er tíminn til að leggjast í dvala, varðveita orku og ná ró. Þetta er einnig tími sem gefur tækifæri til að horfa inn á við og kíkja á hvað hvílir í djúpinu, snerta við hinu falda og sjá innri skugga.


Time & Location
29. des. 2024, 16:00 – 17:45
Reykjavík, Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland
About the Event
Veturinn er tíminn til að leggjast í dvala, varðveita orku og ná ró. Þetta er einnig tími sem gefur tækifæri til að horfa inn á við og kíkja á hvað hvílir í djúpinu, snerta við hinu falda og sjá innri skugga.
Með blöndu af Qigong hreyfandi hugleiðslu ásamt léttum og flæðandi QiFlow hreyfingum losum við um staðnaða orku. Þaðan tekur við leidd hugleiðsla inn á við sem færist svo inn í kröftuga gongslökun þar sem víbringur gongsins hjálpar að róta upp gruggugum botni sjávar þíns og skola út því sem vill losna og fara. Hver og einn velur sína dýpt. Við leitast við losun á því sem við þurfum ekki á að halda og tengja inn á viljastyrk okkar og tilgang.
Viðburðurinn inniheldur:
Qigong og QiFlow sérsniðin að vetrartíð
Fræðslu um vatns element samkvæmt austurlenskum fræðum.
100% hreint kakó eða/og te sem innihalda jurtir sem næra okkur í vetrartíð
Leidd hugleiðsla inn í dýptina
Kröftug gongheilun
Aðrir tónar
Qigong og QiFlow:
Qigong er fornt austurlenskt heilsukerfi sem snýr að sjálfsheilun á mildan máta. Gerðar eru hægar hreyfingar í takt við öndun sem er endurtekið nokkrum sinnum, en þannig nær líkaminn að fara í hreyfandi hugleiðsluástand. Með QiFlow er síðan verið að losað meira í gegnum líkamlega stærri hreyfingar sem eru samt einfaldar og flæðandi. Qigong og QiFlow opnar fyrir orkuflæði og losar óþarfa stífleika og orkustíflur. Hver og ein hreyfing er með einstaka virkni sem stuðlar að betri heilsu, eykur orku og tengingu við eigin líkama, huga og sál.
Um Aldísi:
Aldís er nálastungufræðingur (BSc), qigong kennari og yoga kennari. Einnig hefur hún sótt þekkingu á ýmsa staði hjá mismunandi kennurum og tekur það sem við á inn í hverja kennslu. Hún leggur áherslu á sjálfstengingu, sjálfsást, mildi og heilsu í kennslu og meðferðum sínum. Einnig bætti hún við sig menntun í gongspilun, tónskálum, meðgönguyoga og doula námi á liðnum árum.
Nánar um Aldísi: aldisqiflow.com
Með viðburðinum eru innifalin 2 video sem send út vikuna eftir viðburðinn ásamt tólum sem hjálpa þér inn í nýja tíma.
Verð: 6900